{"product_id":"beitilyng-88357-58451","title":"Beitilyng # 88357","description":"Beitilyng. Ljóð eftir Jórunni Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. Beitilyng er eina bók Jórunnar frá Sörlastöðum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJórunn Ólafsdóttir fæddist á Sörlastöðum í Fnjóskadal 8. maí 1920. Hún ólst þar upp hjá foreldrum sínum og bjó hjá þeim að undantöldum námsárum í Gagnfræðaskóla Akureyrar 1939-42 uns hún flutti eftir lát móður sinnar til Akureyrar með föður sínum og bróður árið 1956.\u003cbr\u003eJórunn vann fyrst í Skóverksmiðjunni Iðunni og síðar við innheimtu og fleiri störf fyrir Dag o.fl. um 15 ára skeið, en dvaldist löngum á Kristneshæli vegna veikinda.\u003cbr\u003eJórunn var í mörg ár formaður Sjálfsvarnar, félags sjúklinga á Kristneshæli og tók mikinn þátt í félagsstarfi SÍBS. Þá lagði hún bindindismálum lið og gegndi trúnaðarstörfum fyrir Dýraverndunarfélag Akureyrar.\u003cbr\u003eJórunni voru bernskuslóðirnar í Fnjóskadal kærar og var hún jarðsett í Illugastaðakirkjugarði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eJólin heima.\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg man það kvöld, er lítið kertaljós\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emér ljóma bar, sem fögur himinsól.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ hjarta mér það græddi gleðirós\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog gaf mér friðinn dýrsta, er lífið ól.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg minnist þess, er lýsti vakan löng,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehve léttist brún og mýktist rödd og fas,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eer vinahópur jólasálma söng\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog síðan pabbi helgan boðskap las.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg móðir mín um bæ sinn glöð þá gekk\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog gjafir veitti og kveikti ljós við ljós,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað launum bros og fyllstu þökk hún fékk\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e- þá fannst mér gróa í hverju spori rós.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440370643272,"sku":"OSC-58451","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/67147.jpg?v=1770471844","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/beitilyng-88357-58451","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}