{"product_id":"ber-thu-mig-thra-62714-55318","title":"Ber þú mig, þrá # 62714","description":"Ber þú mig, þrá. Ljóð eftir Snæbjörn Einarsson. Fyrsta og eina bók höfundar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eBer þú mig, þrá\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBer þú mig, þrá, sem hug minn heillar,\u003cbr\u003eheim, þar sem nam ég fyrsta vorsins óm.\u003cbr\u003eÞar vil ég dvelja, er lífs míns birtu bregður. -\u003cbr\u003eBros þeirra ég man, sem mér gáfu fegurst blóm.\u003cbr\u003eHéðan, sem hug minn enginn, enginn skilur\u003cbr\u003eætla ég burt og fylgja barnsins þrá,\u003cbr\u003esem hreif mig heiman frá yndi og æskustöðvum,\u003cbr\u003een aldrei gaf það, sem hjartað þráði að fá.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞökk fyrir allt, sem yndi veitti,\u003cbr\u003eallt, sem ég fann og týndi í glaumsins borg.\u003cbr\u003eMörgum mun reynast það einhver ávinningur\u003cbr\u003eað eiga kynni af lífsins dýpstu sorg.\u003cbr\u003eBer þú mig, þrá, sem mér öllu ofar bendir,\u003cbr\u003eáleiðis heim, þó að fenni í öll mín spor,\u003cbr\u003eeitt á ég þó, sem öllum veginn greiðir:\u003cbr\u003eástina til þín, mitt hlýja bernsku vor.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122760352072,"sku":"OSC-55318","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62714.jpg?v=1754749593","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ber-thu-mig-thra-62714-55318","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}