{"product_id":"berghlaup-72800-49077","title":"Berghlaup # 72800","description":"Berghlaup. Eftir Ólaf Jónsson.\u003cbr\u003eSíðasta stóra vísindarit Ólafs Jónssonar var Berghlaup, sem kom út 1976. Í Skriðuföllum og snjóflóðum hafði hann fjallað nokkuð um „forn framhlaup“ úr fjöllum, sem hann nefndi svo, því langflest þeirra höfðu orðið á forsögulegum tíma. Eftir 1957 einbeitti hann sér að rannsóknum á þessum miklu skriðum, sem hann gaf íslenska fræðiheitið berghlaup. Hann fór vítt og breitt um landið, skoðaði hlaupin og gerði ýmsar athuganir, mældi fallhæð og hlauphorn, skoðaði berggerð, áætlaði flatarmál og rúmmál. Hann lagði líka mat á aldur þeirra og beitti þá meðal annars gjóskulagaathugunum. Hann grennslaðist fyrir um örnefni, lýsti hlaupunum, teiknaði langsnið og tók ljósmyndir. Upphaflega ætlaði Ólafur sér að gera heildarúttekt á öllum meiriháttar berghlaupum landsins en honum entist ekki starfsþrek til þess enda orðinn sextugur þegar verkið hófst. Þó náði hann að lýsa yfir 200 hlaupum í máli og myndum. Bókin var gefin út af Ræktunarsambandi Norðurlands á áttræðisafmæli hans 1975.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123798573384,"sku":"OSC-49077","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/54493.jpg?v=1754767355","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/berghlaup-72800-49077","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}