{"product_id":"bessi-gamli-52931-20031","title":"Bessi gamli # 52931","description":"Bessi gamli. Gamansaga úr Reykjavík eftir Jón Trausta.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Verði 1.árg 1917 \/ 1918 11. tbl er sagt frá Bessa gamla.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSíðasta bók Jóns Trausta heitir Bessi gamli. Ægir þar\u003cbr\u003esaman viti og vitleysum eins og gerist. Hér skal sýnt\u003cbr\u003eað skáldið sér glögt, það sem í kringum það er. Bessi\u003cbr\u003egamli er vitur karl og hefir lífsreynslu mikla. Hjónaefni, sem hann er velviljaður, heimsækja hann eftir að þau hafa birt trúlofun sína. Karl tekur þeim vel. „Þið megið engin börn eiga,\" mælti hann, — „eða þá bera þau út.\" Þau spvrja hann hvers vegna. Hann svarar:\u003cbr\u003e„Hafið þið ekki séð, hvernig börnin alast upp í Reykjavíkurfrelsinu ? Langar ykkur til að bæta við þann hóp?\u003cbr\u003eEða haldi þið að börnin ykkar veröi undantekning\u003cbr\u003eog ykkur verði auðið að ala þau upp öðruvísi en börn\u003cbr\u003eannara eru alin upp? — Heimilin, sem fram á okkar\u003cbr\u003edaga hafa verið gróðrarreitir siðferðisins, öruggustu vígi\u003cbr\u003eaga og umvöndunar, máttarstoðir þjóðfélagsins, — eru\u003cbr\u003egliðnuð sundur, rifin í rætur niður. Húsbóndinn er í spilaklúbbnum — eða bæjarstjórninni. Húsfreyjan er á einhverjum fundinum. Vinnukonan er í dansskólanum.\u003cbr\u003eAmma gamla kreppist uppi í rúminu sínu, því að alt\u003cbr\u003ehúsið er iskalt. Eldri börnin eru í ungmennafélögunum;\u003cbr\u003ehin á götunni — í hálfgerðum óskilum.------------Það er\u003cbr\u003emargt mannsefnið að alast upp í Reykjavík um þessar\u003cbr\u003emundir! Hafi þið gengið fram hjá húsi, sem verið er að\u003cbr\u003ebyggja — helst á kveldin, eftir að smiðirnir eru farnir\u003cbr\u003eheim ? — Hafi þið þá ekki séð ofurlitla krakka-anga vera\u003cbr\u003eað laumast burtu með spýtu og færa mömmu sinni ? Hafi\u003cbr\u003eþið gengið fram hjá kolabingjum kaupmanna eða landssjóðs. — Þar eru litlu angarnir dálítið stálpaðri og eru\u003cbr\u003emeð poka, sem þeim er lagður til að heiman-------\"\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞannig er Bessi látinn mæla. En húsráðendur og aðrir\u003cbr\u003eeru frá heimilum sínum oft og tíðum í öðrum erindum\u003cbr\u003een Bessi nefnir. En í sama stað kemur með uppeldi og\u003cbr\u003eeftirlit. Heimilið er heimilisleysi. Og þessum heimilum\u003cbr\u003evilja sumir þingmenn fela alt uppeldi barnanna. — Nei,\u003cbr\u003eþá myndi Bessi gamli heldur vilja láta börnin út.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn hann er sérvitrari en þingmenn vorir.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126155673928,"sku":"OSC-20031","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/52931.jpg?v=1754823577","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/bessi-gamli-52931-20031","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}