{"product_id":"bjorg-aevisaga-bjargar-c-thorlaksson-verk-bjargar-c-thorlaksson-90252","title":"Björg. Ævisaga Bjargar C. Þorláksson - Verk Bjargar C. Þorláksson # 90252","description":"\u003cp\u003e* Björg. Ævisaga Bjargar C. Þorláksson. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir\u003cbr\u003e\u003cspan dir=\"auto\"\u003e Björg C. Þorláksson fæddist árið 1874 í Vesturhópshólum í Húnaþingi. Hún braust til mennta af ótrúlegum dugnaði og varð fyrsta íslenska konan til að ljúka doktorsprófi. Sögu þessa brautryðjanda meðal íslenskra kvenna og framlag hennar á sviðum vísinda og fræða hafa fáir þekkt fram til þessa. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur rannsakað ævi og verk Bjargar um árabil og sviptir hér hulunni af óvenjulegri konu sem fór sínar eigin leiðir og trúði á mátt manna til að skapa sig sjálfir. Sagan segir frá sveitastúlku sem komst á kvennaskóla og þaðan til Kaupmannahafnar þar sem hún tók stúdentspróf og fór í háskóla. Hún segir frá hjónabandi hennar og Sigfúsar Blöndal og þætti hennar í hinu mikla stórvirki, Íslensk-danskri orðabók. Hér er greint frá fræðistörfum Bjargar og þátttöku hennar í kvennabaráttunni á fyrstu áratugum tuttugustu aldar, veru hennar í Þýskalandi og Frakklandi og baráttu hennar við illvíga sjúkdóma. Þetta er saga konu sem skóp sig sjálf í trássi við viðteknar hugmyndir um hlutverk kvenna, harmsaga mikillar kvenhetju og merks brautryðjanda. (Heimild: Bókatíðindi 2001).\u003cbr\u003e*  Björg. Verk Bjargar C. Þorláksson. Ritstjóri Sigríður Dúna Kristmundsdóttir.\u003cbr\u003eEfni bókarinnar er: -  Í draumaskógum bundið. Um þýðingarstarf og skáldskap Bjargar C. Þorláksson. Eftir Helgu Kress. - Óbirt ljóð eftir Björg C. Þorláksson. - Að breyta heiminum. Hugmyndir Bjargar C. Þorláksson um kvenréttindi og önnur þjóðfélagsmál. Eftir Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur. - Barnsmæður. Um eðli og hlutverk kvenna. Eftir Björg C. Þorláksson. - Hið sólþrungna lífsmagnaða eðli. Næringarfræði í ritum Bjargar C. Þorláksson. Eftir Inga Þórsdóttur. - Um mataræði og þjóðþrif. Kornmatartegundir og kornmeti. Eftir Björg C. Þorláksson. - Sögulegur bakgrunnur lífsþrónunarhugmynda Bjargar C. Þorláksson. Eftir Steindór J. Erlingsson. - Hafa líffærin andlegt líf? Um lífeðlisfræðina í doktorsritgerð Bjargar C. Þorláksson. Eftir Bryndísi Birnir. - Samþróun líkama og sálar. Eftir Björg C. Þorláksson. - Í gegnum gler í þoku. Um sálfræðina í verkum Bjargar C. Þorláksson. Eftir Önnudís Grétu Rúdólfsdóttur. - Undirrót og eðli ástarinnar. Eftir Björg C. Þorláksson. - Að koma Björgu á kortið. - Heimspeki Bjargar C. Þorláksson í evrópsku samhengi. Eftir Sigríði Þorgeirsdóttur. - Lífsþróun II. Eftir Björg C. Þorláksson. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53919079334216,"sku":null,"price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90252.jpg?v=1787929398","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/bjorg-aevisaga-bjargar-c-thorlaksson-verk-bjargar-c-thorlaksson-90252","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}