{"product_id":"bjorg-visaga-bjargar-c-orlaksson-60206-53560","title":"Björg. Ævisaga Bjargar C. Þorláksson # 60206","description":"Björg. Ævisaga Bjargar C. Þorláksson. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir tók saman.\u003cbr\u003eBjörg C. Þorláksson fæddist árið 1874 í Vesturhópshólum í Húnaþingi. Hún braust til mennta af ótrúlegum dugnaði og varð fyrsta íslenska konan til að ljúka doktorsprófi. Sögu þessa brautryðjanda meðal íslenskra kvenna og framlag hennar á sviðum vísinda og fræða hafa fáir þekkt fram til þessa. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur rannsakað ævi og verk Bjargar um árabil og sviptir hér hulunni af óvenjulegri konu sem fór sínar eigin leiðir og trúði á mátt manna til að skapa sig sjálfir. Sagan segir frá sveitastúlku sem komst á kvennaskóla og þaðan til Kaupmannahafnar þar sem hún tók stúdentspróf og fór í háskóla. Hún segir frá hjónabandi hennar og Sigfúsar Blöndal og þætti hennar í hinu mikla stórvirki, Íslensk-danskri orðabók. Hér er greint frá fræðistörfum Bjargar og þátttöku hennar í kvennabaráttunni á fyrstu áratugum tuttugustu aldar, veru hennar í Þýskalandi og Frakklandi og baráttu hennar við illvíga sjúkdóma. Þetta er saga konu sem skóp sig sjálf í trássi við viðteknar hugmyndir um hlutverk kvenna, harmsaga mikillar kvenhetju og merks brautryðjanda. (Bókatíðindi 2001).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123004637512,"sku":"OSC-53560","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60206.jpg?v=1754755051","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/bjorg-visaga-bjargar-c-orlaksson-60206-53560","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}