{"product_id":"bloug-jor-78518-32296","title":"Blóðug jörð # 78518","description":"Blóðug jörð. Skáldsaga eftir Vilborgu Davíðsdóttur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið er 883. Veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls og Þorsteinn rauður berst við að halda velli á Katanesi þar sem innfæddir gerast æ herskárri. Lífið er hverfult og enginn veit Urðar hug. Á augabragði stendur Auður Ketilsdóttir ein uppi, umkringd óvinum og ábyrg fyrir ungum sonarbörnum. Stefnan er tekin til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn eru sögð iða af fiski, jökulhettur ber við himin og sjálf jörðin spýr eldi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ suðurströnd Íslands hafa þrælar gert uppreisn og goldið grimmilega fyrir. Nýja landið er vígt blóði. Einn kemst lífs úr þeim hildarleik: maður sem á harma að hefna á ætt Dyflinnarkonungs.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVilborg Davíðsdóttir lýkur hér þríleiknum um landnámskonuna Auði djúpúðgu með Blóðugri jörð, sjálfstæðri sögu um siglinguna yfir hafið. Fyrri bækurnar tvær, Auður og Vígroði , hlutu fádæma góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var sú fyrri tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125409448264,"sku":"OSC-32296","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/78518.jpg?v=1754804914","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/bloug-jor-78518-32296","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}