{"product_id":"bondinn-i-braageri-14162-15591","title":"Bóndinn í Bráðagerði # 14162","description":"Bóndinn í Bráðagerði. Skáldsaga eftir Álf utangarðs.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Verkamanninum 37. árg. 18. tbl. 1954 er fjallað um Bóndan í Bráðagerði. Þar segir :\u003cbr\u003e\"Þegar saga þessi var að koma\u003cbr\u003eút sem framhaldssaga í Þjóðviljanum\u003cbr\u003eá s.l. ári, vakti hún að vonum\u003cbr\u003eallmikla athygli. Hér var\u003cbr\u003eefni, sem mönnum var vel kunnugt, tekið nokkuð nýstárlegum\u003cbr\u003etökum. íslenzkir útgefendur hafa\u003cbr\u003elítið fengizt við „satíru\", og ef til\u003cbr\u003evill ekki að ástæðulausu, því að\u003cbr\u003evart mun annað form skáldsagna\u003cbr\u003egerðar öllu erfiðara viðfangs.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞeim mun meiri ástæða er til\u003cbr\u003eað veita þessu verki athygli, þar\u003cbr\u003esem hér er farið inn á nýjar\u003cbr\u003ebrautir, og mér segir svo hugur\u003cbr\u003eum, þó að ýmislegt megi að sögu\u003cbr\u003eþessari finna, að höfundur hennar,\u003cbr\u003esem nefnir sig Álf Utangarðs,\u003cbr\u003eog kvað vera þekktur rithöfundur,\u003cbr\u003eíslenzkur, eigi eftir að geta\u003cbr\u003esér nafn á þessu sviði skáldlistarinnar,\u003cbr\u003eog hann ætti engan veginn\u003cbr\u003eað láta staðar numið við\u003cbr\u003eþessa bók.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSagan gerist að mestu í Reykjavík vorra daga og lýsir viðskiptum\u003cbr\u003ebónda eins við hið opinbera,\u003cbr\u003eráðin öll og nefndirnar, skriffinnskuna\u003cbr\u003eog spillinguna í opinberu\u003cbr\u003elífi. Mun margur mæla, að\u003cbr\u003evart sé ofsagt frá þeim ófögnuði.\u003cbr\u003eHitt mun mála sannast, að bóndinn sé tæpast nútímamaður, hann\u003cbr\u003eer af annarri kynslóð og nokkru\u003cbr\u003eeldri heldur en þeir, sem hann á\u003cbr\u003eskipti við og það finnst mér meginókostur\u003cbr\u003esögunnar og finnst\u003cbr\u003ehann gera ýmsa hluti hennar ósennilegri\u003cbr\u003eheldur en ella hefði\u003cbr\u003everið og þurft hefði að vera.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókin er víða skemmtileg aflestrar\u003cbr\u003eog þægileg dægrastytting.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126594175304,"sku":"OSC-15591","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/alfurutangards_bondinnibradagerdi.jpg?v=1754829909","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/bondinn-i-braageri-14162-15591","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}