{"product_id":"brefabok-orlaks-biskups-skulasonar-80476-40869","title":"Bréfabók Þorláks biskups Skúlasonar # 80476","description":"Bréfabók Þorláks biskups Skúlasonar.\u003cbr\u003eÞorlákur biskup Skúlason sat Hólastól á árunum 1628-1656, næstur eftir afa sinn, Guðbrand biskup Þorláksson, sem andaðist 1627. Bréfabók Þorláks er því beint framhald Bréfabókar Guðbrands, sem Bókmenntafélagið gaf út á árunum 1919-1942, en sú bók var í raun hugsuð sem aukageta við Íslenzkt fornbréfasafn. Þó að Þorlákur biskup væri ekki jafnsvipmikill maður og Guðbrandur afi hans, farnaðist honum vel í embætti. Hann var laginn stjórnandi, réttlátur, mildur og mannúðlegur kirkjuhöfðingi, sem lét þó ekki ganga á rétt kirkjunnar. Prentverkið á Hólum stóð með miklum blóma um hans daga, en sendi nær eingöngu frá sér guðsorðabækur. Þorlákur biskup var einnig fornmenntamaður og studdi með ráðum og dáð ýmsa brautryðjendur á sviði íslenzkra fræða, sem sem Arngrím lærða og Björn á Skarðsá.\u003cbr\u003eBréfabók Þorláks biskups Skúlasonar er ómetaleg heimild um kirkjustjórn og aldarfar norðanlands á öðrum fjórðungi 17. aldar. Þó að útgáfa hennar sé sérstaklega sniðin við hæfi og þarfir sangfræðinga, á hún erindi til allra, sem láta sig þjóðleg fræði einhverju skipta. (Káputexti).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124857340232,"sku":"OSC-40869","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/71103.jpg?v=1754789400","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/brefabok-orlaks-biskups-skulasonar-80476-40869","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}