{"product_id":"brotahofu-54613-49176","title":"Brotahöfuð # 54613","description":"Brotahöfuð. Skáldsaga eftir Þórarin Eldjárn.\u003cbr\u003eHaustið 1649 situr Guðmundur Andrésson, íslenskur almúgamaður frá Bjargi í Miðfirði, bak við lás og slá í kóngsins Kaupmannahöfn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann er skólagenginn og ágætlega lærður, fræðimaður og skáld. Aldrei hefur hann þó getað lært að bera tilhlýðilega virðingu fyrir yfirvöldunum, veraldlegum sem andlegum, og það kemur honum í koll.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHonum er gefið að sök að hafa samið hneykslanlegt rit gegn Stóradómi, hinni harkalegu siðferðislöggjöf sem þjakaði Íslendinga um aldir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Bláturni, einu illræmdasta fangelsi Danaveldis, bíður Guðmundur þess sem verða vill meðan hann veltir fyrir sér lífshlaupi sínu og reynir að raða saman brotum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123783336264,"sku":"OSC-49176","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/54613.jpg?v=1754767037","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/brotahofu-54613-49176","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}