{"product_id":"brotasaga-68903-59811","title":"Brotasaga # 68903","description":"Brotasaga. Skáldsaga eftir Björn Th. Björnsson.\u003cbr\u003eFrá sumrinu sem nú fór í hönd er fátt um ljósa drætti í sögu Önnu Guðrúnar. Víst er þó að hún kom sér í saumanám og vinnu. Fólst hún aðallega í saumaskap á íslenzka búningnum, þó ekki á upphlut eða baldýringu, heldur vélsaum á kyrtlum og möttlum sem þá voru mjög að komast í móð. Af munnlegum heimildum, en óljósum þó, er helzt að ráða að hún hafi verið undir handarjaðri þeirrar kunnu saumakonu Emerensínu Þorkelsdóttur í Bankastræti 14. Af sömu heimild varð Anna brátt mjög lagin og mikilvirk í þessum starfa og hafði brátt af honum þær tekjur sem dugðu henni til allrar framfærslu og góðu herbergi upp af Grjótaþorpinu. Var hún nú í fyrsta sinni sjálfstæð og sjálfráð sinna gerða og ferða. Þeim mun varð hún Halldóri Runólfssyni torsóttari þegar hann tók að bera í hana víurnar, sjálfur orðinn verkstjóri og helzti útvegunarmaður James White, einkum við fiskkaup uppi á Skaga og suður með sjó, enda kominn með nýtt dingl á úrfestinni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122035458376,"sku":"OSC-59811","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68903.jpg?v=1754734369","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/brotasaga-68903-59811","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}