{"product_id":"burt-me-harstjorann-74256-51634","title":"Burt með harðstjórann! # 74256","description":"Burt með harðstjórann! eftir Franquin. Jón Gunnarsson þýddi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSvalur og Valur heimsækja Sveppagreifann og gormdýrið. Gormurinn kemur höndum yfir nýjustu uppfinningu greifans, undraefnið metómól sem gerir málma mjúka sem smjör. Dýrið veldur miklum usla í Sveppaborg áður en tekst að fanga það. Félagarnir komast að þeirri niðurstöðu að rétt sé að koma gormdýrinu aftur til síns heima í frumskógum Palombíu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEftir viðburðaríka siglingu komast þeir til Palombíu og uppgötva að landið er undir járnhæl herforingjastjórnar. Leiðtogi hennar er Sammi frændi Vals, sem áður hafði komið við sögu í Baráttunni um arfinn. Hann hvetur félagana til þess að ganga til liðs við stjórn sína og upplýsir um þau áform sín að ráðast á nágrannaríkið. Svalur og Valur hafna fyrst tilboðinu en þykjast svo skipta um skoðun í þeirri von að geta afstýrt styrjöldinni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNjósnarar Samma frænda fylgjast með hverju fótmáli Svals og Vals, sem hafa nú verið skipaðir herforingjar í Palombíuher. Þeim tekst þó að senda skilaboð til Sveppagreifans með milligöngu blaðakonunnar Bitlu. Með metómóli greifans tekst þeim á síðustu stundu að eyðileggja vopnabúr hersins og sigra Samma frænda. Þeir kveðja gormdýrið, en í bókarlok er sterklega gefið í skyn að dýrið fylgi þeim aftur til baka.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123229196616,"sku":"OSC-51634","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/57611.jpg?v=1754760063","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/burt-me-harstjorann-74256-51634","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}