{"product_id":"dagsbrun-75125-17189","title":"Dagsbrún # 75125","description":"Dagsbrún. Söngvar og kvæði eftir Jónas Guðlaugsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eSuðrænar rósir\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMig dreymir um rauðar rósir,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003erósir, sem fæðast undir eldheitri sól,\u003cbr\u003esvo rauðar sem blóð,\u003cbr\u003esvo heitar sem blóð\u003cbr\u003eúr hjarta, sem titrar af ást og löngun til lífsins.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSuðrænu, rauðu rósir!\u003cbr\u003eveikar og heitar og fæddar til augnabliks yndis,\u003cbr\u003eég vil teyga´ ykkar ilm\u003cbr\u003eog eldin rauða\u003cbr\u003esjúga þyrstu í sál mína inn,\u003cbr\u003eykkar brennandi blóð,\u003cbr\u003esem er banvænna en eitur,\u003cbr\u003eog kasta ykkur fölnuðum frá mér.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg þegar hin suðræna sól\u003cbr\u003etendrar funandi bál af fölnuðum blöðum\u003cbr\u003eog frjógvar þá jörð,\u003cbr\u003esem fæðir nýjar og fegurri rósir,\u003cbr\u003eskar bjarminn af ykkar eldför stíga\u003cbr\u003etil hins ískalda norðurs\u003cbr\u003eog sindra sem óður\u003cbr\u003eum eld og blóð\u003cbr\u003eog suðrænar rauðar rósir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSuðrænu rósir!\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ fjarlægð ég sé ykkur,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eúr fjarlægð þið storkið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emeð ilmþungum krónum og brennandi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eblöðum,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem ég aldrei get náð,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem ég aldrei get kyst\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog kastað svo fölnuðum frá mér.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126541615432,"sku":"OSC-17189","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/75125.jpg?v=1754827976","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/dagsbrun-75125-17189","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}