{"product_id":"dagstund-a-fort-garry-58704-52430","title":"Dagstund á Fort Garry # 58704","description":"Dagstund á Fort Garry. Svipmyndir. Haraldur Bessason tók saman.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eDag einn í júlí 1959 hitti Haraldur Bessason í fyrsta sinn Jósep Thorson, ættaðan frá Ásakoti í Biskupstungum, hermálaráðherra Kanada á stríðsárunum síðari.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta var á Fort Garry-hótelinu í Winnipeg, og í för með Haraldi voru Jóhann Gestur Jóhannsson og Sveinn Björnsson læknir, báðir aldavinir Jóseps.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMargt bar á góma og í bókinni er svipmyndum fengin þessi dagstund til umráða. Sú stund teygir sig engu að síður yfir nokkra áratugi; má því ætla að tímarammi styðji þar ekki í einu og öllu rökrænt samhengi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHaraldur rifjar upp á sinn sérstæða hátt frásagnir af samskiptum íslenskra landnámsmanna við indíána og Úkraínumenn og söguna af stórorrustu Jóseps og félaga við kalkúna og rekur hugleiðingar sínar um Kensington-steininn, goðsagnir og margt fleira.\u003cbr\u003e(Káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123122078024,"sku":"OSC-52430","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/58704.jpg?v=1754757826","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/dagstund-a-fort-garry-58704-52430","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}