{"product_id":"dali-vestur-85371-44577","title":"Í Dali vestur # 85371","description":"Í Dali vestur. Eftir Árna Björnsson.\u003cbr\u003eÁrbók FÍ 2011 fjallar um Dalabyggð norðan Laxárdalsheiðar og einkum um svæðið milli Hvammsfjarðar og Gilsfjarðar. Hluti Stranda, frá Hrútafjarðarbotni og norður í Bitru kemur einnig við sögum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHöfundur bókarinnar er Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur. Bókin er vönduð landlýsing þar sem sögu svæðisins eru gerð góð skil en söguríkt er það svo sannarlega. Þá eru í bókinni upplýsingar um fjölda skemmtilegra gönguleiða. Bókin veitir því lesandanum góða leiðsögn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHöfundur heldur hér áfram yfirferð sinni sem hófst með Árbók FÍ 1997 þegar hann skrifaði um fjalllendið milli Mýra og Dala. Nú er för heitið alla leið austur í Bitrufjörð um eiðið sem tröllin í þjóðsögunni ætluðu að grafa sundur til að skilja Vestfjarðarkjálkann frá meginlandinu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókin er prýdd fjölda ljósmynda sem flestar voru teknar sérstaklega fyrir bókina af Daníel Bergmann. Daníel annaðist einnig umbrot á bókinni auk vinnslu ljósmynda. Bókin hefur einnig að geyma vönduð kort sem teiknuð voru af Guðmundi Ó. Ingvarssyni. Jón Viðar Sigurðsson ritstýrði verkinu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124218364232,"sku":"OSC-44577","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/49024.jpg?v=1754780330","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/dali-vestur-85371-44577","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}