{"product_id":"dansa-i-haloftunum-60992-37261","title":"Dansað í háloftunum # 60992","description":"Dansað í háloftunum. Endurminningar Þorsteins E. Jónssonar flugkappa.\u003cbr\u003eFlugmannsferill Þorsteins E. Jónssonar nær yfir 47 ár, næstum hálfa öld. Hann á að baki rúmlega 36 þúsund flugtíma, þar af um 450 tíma á Spitfire, helstu orustuvél Breta í stríðinu. Þorsteinn gekk í konunglega breska flugherinn í apríl 1940 og var í honum til ársloka 1946. Hann lærði að fljúga í hernum og tók þátt í loftárásum Breta í stríðinu, eins og innrás í Normandy og Norður-Afríku. Þorsteinn var sæmdur 6 heiðursmerkjum fyrir vasklega framgöngu í stríðinu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorsteinn segist hafa verið með flugdellu frá því hann var smástrákur. Í upphafi stríðs hafi engin flugkennsla verið á Íslandi. Eina tækifæri hans til flugnáms hafi verið að ganga í breska flugherinn. Hann segir að erfitt sé að tiltaka hættulegasta flugið. Þetta hafi æði oft verið leikur upp á líf og dauða. Ég var lukkunnar pamfíll. Langflestir af félögum mínum, sem byrjuðu samtímis, lifðu ekki stríðið af,\" segir Þorsteinn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125088321864,"sku":"OSC-37261","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40341.jpg?v=1754796464","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/dansa-i-haloftunum-60992-37261","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}