{"product_id":"danskurinn-i-bae-72306-62150","title":"Danskurinn í Bæ # 72306","description":"Danskurinn í Bæ. Adam Hoffritz segir frá. Guðmundur G. Hagalín skráði.\u003cbr\u003eMaður heitir Adam Hoffritz, danskur að kyni og þýzkur í fram ættir. Hann ólst upp í Lyngby við Kaupmannahöfn, sem nú er kjördæmi Per Hækkerup, en barst til Íslands rösklega tvítugur, gerðist vinnumaður hjá Degi heitnum Brynjúlfssyni í Gaulverjabæ, stundaði sjómennsku úr Baugstaðasandi og settist svo að á Selfossi, giftist ágætri konu frá Stokkseyri og hefur lagt á margt gjörva hönd um ævina. Adam hefur átt hér heima fjóra áratugi og jafnan verið svo heppinn að dveljast á Suðurlandi, ef undan eru skildar kynnisferðir í önnur héruð og veiðar. Hann er garpur að afli og áræði, hamhleypa til verka, þúsund þjalasmiður, gengur berhöfðaður í öllum veðrum og setur aldrei upp vettlinga. Hann blandar dönsku óspart saman við íslenzku í tali, enda fljóthugi, en er flestum hressari í máli, fyndinn, skömmóttur og ýkinn. Adam þessu mun í hópi vinsælustu samtíðarmanna og hann er harla athyglisverður og minnisstæður. Hann fremur kappsamlega laxadráp í tómstundum og hefur farið þeirra erinda allt norður í Laxá í Aðaldal, og eru þó hæg heimatökin í Árnesþingi. Má að því marka veiðifíkn mannsinns. (Alþýðublaðið 16. desember 1966.)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121636540744,"sku":"OSC-62150","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/72306.jpg?v=1754726796","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/danskurinn-i-bae-72306-62150","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}