{"product_id":"dauamenn-67129-27180","title":"Dauðamenn # 67129","description":"Dauðamenn. Söguleg skáldsaga eftir Njörð P. Njarðvík.\u003cbr\u003e10. apríl 1665 voru tveir feðgar brenndir á báli í Skutulsfirði. Var þeim gefið að sök að hafa ofsótt sóknarprest sinn með göldum og valdið honum sárum þjáningum, andlegum og líkamlegum. Að dóminum og aftökunni stóðu tveir sýslumenn, Magnús Magnússon á Eyri í Syeðisfirði og Þorleifur Kortsson, sem hvað mest hefur komið við sögu íslenskra galdraofsókna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUm þessa atburði ritaði presturinn séra Jón Magnússon Píslarsögu sína þar sem hann leitaðist við að réttlæta gerðir sínar. Sú bók er varnarrit og birtir einungis sjónarmið prestsins. Í skáldsögunni Dauðamenn hefur Njörður P. Njarðvík endurskapað sögu feðganna, sem brenndir voru, í dramatískri og spennandi frásögn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125619327304,"sku":"OSC-27180","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/28485.jpg?v=1754812525","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/dauamenn-67129-27180","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}