{"product_id":"djupi-86440-37027","title":"Djúpið # 86440","description":"Djúpið. Skáldsaga eftir Steinar Sigurjónsson.\u003cbr\u003eSteinar Sigurjónsson er í hópi merkustu rithöfunda Íslands á síðari helmingi tuttugustu aldar. Í fyrstu verkum hans var sleginn tónn sem ekki hafði áður heyrst í íslenskum bókmenntum. Yrkisefnin voru ný – grámygla sjávarþorpsins sem kæfir niður þrá mannsins eftir fegurð – og aðferðirnar sömuleiðis: Steinar var á vissan hátt frumkvöðull módernískrar sagnagerðar á Íslandi, en hann var líka athyglisvert ljóðskáld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrsta bók Steinars, Hér erum við, kom út árið 1955. Af helstu verkum hans má nefna Ástarsögu, Blandað í svartan dauðann, Farðu burt skuggi og Kjallarann. Steinar skrifaði einnig fjölmörg leikrit og einþáttunga og hafa sumir þeirra verið fluttir í útvarpi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann skrifaði verk sín ekki aðeins í eigin nafni heldur einnig undir dulnefnunum Steinar á Sandi, Sjóni Sands og Bugði Beygluson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eStaða Steinars í íslenskri bókmenntasögu hefur ekki verið sem skyldi, þótt ljóst megi vera að hann sé tíðindamaður í þeim efnum og hafi haft verðmæt áhrif á yngri höfunda. Kemur þar margt til. Utangarðstaða í lífi virðist hafa skipt þar máli auk þess sem verk hans hafa verið á hrakhólum, verk sem eru á vissan hátt einstæð í íslenskum bókmenntum á 20. öld. Þau eru gædd þeim fágæta eiginleika að vera framúrstefnuleg um leið og þau virðast spretta á eðlilegan hátt úr umhverfi skáldsins, sem endurspeglun og viðbrögð. Að þessu leyti sver Steinar sig í ætt við ýmsa merkustu módernista 20. aldar á sviði skáldsagnagerðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSteinar Sigurjónsson fæddist þann 9. mars árið 1928 á Hellissandi. Hann fluttist ungur til Akraness og ólst þar upp. Steinar lærði prentiðn við Hrappseyjarprent og Prentverk Akraness og lauk prófi sem prentari frá Iðnskólanum á Akranesi árið 1950. Hann starfaði alfarið við iðn sína í nokkur ár en sneri sér síðan að ritstörfum, stundum samhliða prentverki. Steinar Sigurjónsson andaðist í Hollondi 2. október árið 1992.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125105721672,"sku":"OSC-37027","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40080.jpg?v=1754797006","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/djupi-86440-37027","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}