{"product_id":"dulrunir-89732","title":"Dulrúnir # 89732","description":"\u003cp\u003e Dulrúnir. Eftir Hermann Jónasson.\u003cbr\u003eHermann Jónasson var fæddur í október árið 1858. Hann var búfræðingur og sat á alþingi fyrir Heimastjórnarflokkin frá 1900 til 1908. \u003cbr\u003eBúfræðiprófi frá Hólum árið 1884. Eftir það dvaldi hann í Danmörku um skeið, þar af við nám í landbúnaðarháskólanum þar í sex mánuði. Fljótlega eftir heimkomuna gerðist hann Skólastjóri Alþýðuskólans í Hléskógum í Höfðahverfi frá 1887 – 1888. Var síðar skólastjóri Búnaðarskólans á Hólum 1888 – 1896. Bóndi á Þingeyrum 1896 – 1905 og ráðsmaður Laugarnesspítala 1905 – 1910. Eftir þetta dvaldist hann í Ólafsvík og Reykjavík til skiptis frá 1910 – 1917 og í Vesturheimi 1917 – 1922 og síðan í Reykjavík til æviloka.\u003cbr\u003eVeturinn 1903 – 1904 dvaldist hann í vesturheimi, sendur af Búnaðarfélagi Íslands, til þess að kynna sér meðferð á saltkjöti og leita því markaðar. Hann stofnaði Búnaðarritið 1887 og var ritstjóri þess til 1899. Einnig var hann yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1906 og 1907.\u003cbr\u003eHermann ritaði ýmsar greinar og bækur um hugarefni sín, ásamt því að ritstýra Búnaðarritinu, en meðal annars barðist hann fyrir því á Alþingi að upp yrði tekin þegnskylduvinna fyrir ungmenni frá 18 til 24 ára. Þó er nær að kalla hugmyndir hanns vinnuskóla því hann gerði aðeins ráð fyrir sjö til átta vikna vinnu þar sem afköst væru ekki aðalatriðið heldur nám í bæði því að vinna og helst einhverju ákveðnu starfi eða iðn. Eins skrifaði hann greinar um til dæmis matarsalt og annað sem tengdist vesturför hanns og tilraunum til markaðssetningar á saltkjöti þar.\u003cbr\u003eHermann gaf út tvær bækur um drauma og dulræn málefni, ásamt því að rita greinar um sama efni, þar sem hann tíundaði eigin reynslu og reyndi að skýra út berdreymi, hugboð og hugsýnir, en að hanns sögn var hann gæddur þessum hæfileikum.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53226211115336,"sku":null,"price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89732.jpg?v=1780483491","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/dulrunir-89732","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}