{"product_id":"dvergliljur-88065-72720","title":"Dvergliljur # 88065","description":"Dvergliljur. Ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eKarl og kona\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eDrottinn guð lífsins átti erindi við fjárhirðinn Móse.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFundum þeirra bar saman í fjallshlíð vaxinni þyrnikjarri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMóses, þrælborinn uppreisnarmaður og útlagi,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehélt fénaðinum þar til beitar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eDrottinn guð lífsins tók hann tali\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog vildi gera hann að jarli sínum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog setja hann yfir hina útvöldu þjóð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog bauð honum að leiða hann heim í Fyrirheitnalandið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞeir þjörkuðu um þetta lengi dags áður en þeir sömdu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLoks lofaði Móses fyrir sitt leyti að halda samninginn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg aldir liðu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞá var það\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað Drottni guði lífsins\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ekom konan í hug.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann sendi skutulsvein sinn, Gabríel að nafni,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emeð laumuleg skilaboð til meyjarinnar Maríu,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem sat í festum í föðurgarði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eStúlkan María var af vammlausri fjölskyldu\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog heitin forstöndugum smið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞrátt fyrir það flutti Gabríel henni\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehin furðulegu skilaboð frá húsbóndanum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eStúlkan laut þrisvar svo enni hennar nam við gólf\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog mælti án umþenkingar: “Sjá ég er ambátt Drottins.”","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440530092360,"sku":"OSC-72720","price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/88065.jpg?v=1770474759","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/dvergliljur-88065-72720","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}