{"product_id":"egar-salin-fer-a-kreik-46471-42479","title":"Þegar sálin fer á kreik # 46471","description":"Þegar sálin fer á kreik. Minningar Sigurveigar Guðmundsdóttur, kennara í Hafnarfirði. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skráði.\u003cbr\u003eSigurveig Guðmundsdóttir hefur, eins og öll hennar kynslóð, lifað tímanna tvenna og stórkostlegar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi á æviskeiði hennar. Í mótun persónu Sigurveigar, sem fæddist í Hafnarfirði árið 1909, skipti þó mestu sú staðreynd að henni var sem ungri stúlku í blóma lífsins kippt út úr samfélaginu og inn á berklahæli þar sem hún barðist við hvíta dauða í mörg ár, þar af marflöt í gipsi í tvö ár. Er svo sem frá nokkru að segja í slíkri tilveru? Jú, reyndar, því þegar hinn ytri heimur lokast, utan eins klefa, þá fer sálin á kreik. Heimurinn var hjáleigan, höfuðbólið draumsins ríki.\u003cbr\u003eAnnar og ekki síðri áhrifavaldur var sú ákvörðun Sigurveigar að taka kaþólska trú rétt tvítug að aldri og uppfrá því var kaþólska kirkjan leiðarstjarna hennar í lífinu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124767129928,"sku":"OSC-42479","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/46471.jpg?v=1754785576","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/egar-salin-fer-a-kreik-46471-42479","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}