{"product_id":"egils-saga-skalla-grimssonar-85566-32672","title":"Egils saga Skalla-Grímssonar # 85566","description":"Egils saga Skalla-Grímssonar. Sigurður Nordal gaf út og ritar formála.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkalla-Grímur og þau Bera áttu börn mjög mörg, og var það fyrst, að öll önduðust; þá gátu þau son, og var vatni ausinn og hét Þórólfur. En er hann fæddist upp, þá var hann snemma mikill vexti og hinn vænsti sýnum; var það allra manna mál, að hann myndi vera hinn líkasti Þórólfi Kveld-Úlfssyni, er hann var eftir heitinn. Þórólfur var langt um fram jafnaldra sína að afli; en er hann óx upp, gerðist hann íþróttamaður um flesta þá hluti, er þá var mönnum títt að fremja, þeim er vel voru að sér gerðir. Þórólfur var gleðimaður mikill; snemma var hann svo fullkominn að afli, að hann þótti vel liðfær með öðrum mönnum; varð hann brátt vinsæll af alþýðu; unni honum og vel faðir og móðir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞau Skalla-Grímur áttu dætur tvær; hét önnur Sæunn, en önnur Þórunn; voru þær og efnilegar í uppvexti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEnn áttu þau Skalla-Grímur son; var sá vatni ausinn og nafn gefið og kallaður Egill. En er hann óx upp, þá mátti brátt sjá á honum, að hann myndi verða mjög ljótur og líkur föður sínum, svartur á hár. En þá er hann var þrevetur, þá var hann mikill og sterkur, svo sem þeir sveinar aðrir, er voru sex vetra eða sjö; hann var brátt málugur og orðvís; heldur var hann illur viðureignar, er hann var í leikum með öðrum ungmennum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað vor fór Yngvar til Borgar, og var það að erindum, að hann bauð Skalla-Grími til boðs út þangað til sín og nefndi til þeirrar ferðar Beru, dóttur sína, og Þórólf, son hennar, og þá menn aðra, er þau Skalla-Grímur vildu að færu; Skalla- Grímur hét för sinni. Fór Yngvar þá heim og bjó til veislunnar og lét þá öl heita.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn er að þeirri stefnu kemur, er Skalla-Grímur skyldi til boðsins fara og þau Bera, þá bjóst Þórólfur til ferðar með þeim og húskarlar, svo að þau voru fimmtán saman.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEgill ræddi um við föður sinn, að hann vildi fara; \"á eg þar slíkt kynni sem Þórólfur,\" segir hann.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\"Ekki skaltu fara,\" segir Skalla-Grímur, \"því að þú kannt ekki fyrir þér að vera í fjölmenni, þar er drykkjur eru miklar, er þú þykir ekki góður viðskiptis, að þú sért ódrukkinn.\"\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSteig þá Skalla-Grímur á hest sinn og reið í brott, en Egill undi illa við sinn hlut. Hann gekk úr garði og hitti eykhest einn, er Skalla-Grímur átti, fór á bak og reið eftir þeim Skalla-Grími; honum varð ógreiðfært um mýrarnar, því að hann kunni enga leið, en hann sá þó mjög oft reið þeirra Skalla-Gríms, þá er eigi bar fyrir holt eða skóga. Er það að segja frá hans ferð, að síð um kveldið kom hann á Álftanes, þá er menn sátu þar að drykkju; gekk hann inn í stofu. En er Yngvar sá Egil, þá tók hann við honum feginsamlega og spurði, hví hann hefði svo síð komið. Egill sagði, hvað þeir Skalla-Grímur höfðu við mælst. Yngvar setti Egil hjá sér. Sátu þeir gagnvert þeim Skalla-Grími og Þórólfi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað var þar haft ölteiti, að menn kváðu vísur; þá kvað Egill vísu:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKominn emk til arna\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eYngvars, þess's beð lyngva,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehann vask fúss at finna,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003efránþvengjar gefr drengjum;\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emun eigi þú, þægir,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþrévetran mér betra,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eljósundinna landa\u003cbr\u003e\u003cbr\u003elinns, óðar smið finna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eYngvar hélt upp vísu þeirri og þakkaði vel Agli vísuna; en um daginn eftir þá færði Yngvar Agli að skáldskapar launum kúfunga þrjá og andaregg. En um daginn eftir við drykkju kvað Egill vísu aðra um bragarlaun:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSíþögla gaf söglum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esárgagls þría Agli\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehirðimeiðr við hróðri\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehagr brimrótar gagra,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eok bekkþiðurs blakka\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eborðvallar gaf fjorða\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ekennimeiðr, sás kunni,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ekörbeð, Egil gleðja.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVel lagði Egill í þökk skáldskap sinn við marga menn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEkki varð þá fleira til tíðinda í ferð þeirra. Fór Egill heim með Skalla-Grími.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125396275528,"sku":"OSC-32672","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/39279.jpg?v=1754804362","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/egils-saga-skalla-grimssonar-85566-32672","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}