{"product_id":"eldfuglinn-64442-56569","title":"Eldfuglinn # 64442","description":"Eldfuglinn. Ljóð eftir Maríu Skagan.\u003cbr\u003eMaría Jónsdóttir Skagan fæddist þann 27. janúar 1926 á Bergþórshvoli í Vestur-Landeyjum, Rangárvallasýslu. Hún ólst þar upp til 18 ára aldurs. Foreldrar hennar voru hjónin sr. Jón Jónsson Skagan, prestur á Bergþórshvoli f. á Þangskála á Skaga 3. ágúst 1897, d. 4. mars 1989 og Sigríður Jenný Gunnarsdóttir Skagan frá Selnesi á Skaga, f. á Sævarlandi í Laxárdal 21. janúar 1900, d. 19. febrúar 1991.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMaría stundaði nám við Héraðsskólann að Laugarvatni í einn vetur og fór síðan í Verslunarskóla Íslands. Ung varð hún fyrir alvarlegum meiðslum á hrygg sem komu í veg fyrir frekara nám. Hún starfaði þó um árabil á skrifstofu Ríkisféhirðis. Árið 1960 komu hryggmeiðsli hennar í veg fyrir að hún gæti haldið áfram störfum og hvarf hún af vinnumarkaði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkáldskapurinn átti hug Maríu allan og lét hún ekki líkamlega vanheilsu koma í veg fyrir að hún sinnti honum. Hún stundaði þýðingar og skrifaði þætti í Sunnudagsblað Tímans þar sem hún starfaði sem blaðakona. María hafði sérstaklega gott vald á móðurmálinu og orti allt sitt líf. Hún skrifaði einnig smásögur og gaf út skáldsögu á höfundarferli sínum. Sögur hennar og ljóð voru lesin í útvarpi og nokkrir sönglagatextar eru til eftir hana. María var bundin við hækjur og að endingu við rúmið í tugi ára. Hún tók því með jafnaðargeði að sögn samferðamanna sinna enda hafði hún skáldskapinn sér til hugarhægðar. (www.skald.is)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122554569032,"sku":"OSC-56569","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64442.jpg?v=1754745479","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/eldfuglinn-64442-56569","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}