{"product_id":"endurminningar-fjallgongumanns-61003-54126","title":"Endurminningar fjallgöngumanns # 61003","description":"Endurminningar fjallgöngumanns. Nokkrar ferðaminningar eftir Þórð Guðjohnsen.\u003cbr\u003eUm Þórð Guðjohnsen eftir Jakob Guðjohnsen.\u003cbr\u003eAllar myndir í bókinni eru teiknaðar af Þórði Guðjohnsen.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHöfundur þessarar litlu ritgerðar er alinn upp í hverfi, þar sem há strandberg ganga í sjó fram, en fjöll og háar heiðar liggja að baki. Taka síðan við óbyggðir og öræfi, allt fram til jökla. Voru hér hin bestu skilyrði fyrir því, að kynnast klettum og fjöllum og voru margar stundir notaðar til þess, þegar öðrum skyldum var lokið. Get ég þakkað föður mínum frjálslyndi hans í þá átt. Var hann ávallt á þeirri skoðun, að ekki mætti kúlda stráka í húsum inni, ef þeirr ættu ekki að verða skussar, og tók hann við og við þátt í fjallgöngum okkar bræðra. Hin fyrsta fjallganga mín var á Húsavíkurfjall, sem þá aðeins 417 metrar, og mun ég þá hafa verð 7-8 ára. En er mér óx fiskur um hrygg, notaði ég flest sumarleyfi til ferða í fjallalöndum. Það, sem ungur nemur, gamall temur. Hefur ást mín á fjöllum og öræfum haldist óveikluð fram á elliár. En ekki hef ég ætið átt við tindana. Fleiri af ferðum mínum hafa aðeins verið langar göngur í fjallasveitum og yfir skörð.\u003cbr\u003e(Káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122934612296,"sku":"OSC-54126","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/61003.jpg?v=1754753187","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/endurminningar-fjallgongumanns-61003-54126","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}