{"product_id":"engjafang-65000-57032","title":"Engjafang # 65000","description":"Engjafang. Magnús Kolbeinsson bóndi á Stóra-Ási rekur lífshlaup sitt.\u003cbr\u003eMagnús er fæddur á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu árið 1921 og átti þar heima þar til hann var tæplega þriggja ára er foreldrar hans fluttu að Stóra – Ási. Þar hefur hann átt heima síðan. Hann vann að búi foreldra sinna eftir að hann hafði aldur til, sótti farskóla á ýmsum bæjum í Hálsasveit og var auk þess þrjá vetur í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Hann bjó í Stóra - Ási, ásamt konu sinni, Þórunni Andrésdóttur frá Kolslæk í 35 ár eða frá 1954 til 1989. Þau eignuðust fjögur börn, þrjá syni og eina dóttur.\u003cbr\u003eHeiti bókarinnar “Engjafang” á sér tilvísun í þann gamla sið sem tengist heyskap fyrr á árum og dregur nafn sitt af því að þegar búið var að binda síðustu sáturnar á heybandslestina við heyskaparlok var skilið eftir heyfang við teiginn. Það átti að tákna þakkarfórn til almættisins fyrir heyfang sumarsins. Þættirnir í bókinni er skrifaðir eftir að komin voru sláttulok og farið var að hausta í ævi höfundanna. Þeir voru fyrst og fremst hugsaðir til dægrastyttingar, en auk þess að vera “fangið sem skilið er eftir í teignum” - þakklætisvottur til samferðafólksins á langri leið og til landsins sem fóstraði þá og geymir ræturnar. Í bókinni er m.a. fjallað um heimilisfólk og húsaskipan á öllum bæjum í Hálsasveit, þegar höfundur man fyrst eftir sér. Sérstakur þáttur er um systkinin frá Búrfelli. Að öðru leyti hefur bókin að geyma frásagnir af atvinnuháttum, fólki og félagslífi í Stóra – Ási og ýmsum öðrum bæjum í uppsveitum Borgarfjarðar. Að auki eru í bókinni minningarþættir sem faðir Magnúsar, Kolbeinn Guðmundsson og móðir hans, Helga Jónsdóttir tóku saman “við sláttulok” og lágu eftir þau að þeim látnum. Í lok bókarinnar er einnig bændatal Stóra – Áss, sem Þorsteinn Þorsteinsson frá Húsafelli tók saman.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122452889928,"sku":"OSC-57032","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/65000.jpg?v=1754743830","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/engjafang-65000-57032","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}