{"product_id":"enska-oldin-i-sogu-slendinga-85062-70863","title":"Enska öldin í sögu Íslendinga # 91309","description":"\u003cp\u003eEnska öldin í sögu Íslendinga eftir Björn Þorsteinsson.\u003cbr\u003eMeð Ensku öldinni er átt við þann hluta sögu Íslands sem á oft við alla 15. öldina en nær strangt til tekið frá 1415 til 1475 þegar Englendingar öðrum fremur sigldu til Íslands til að veiða og kaupa skreið og aðra vöru (t.d. vaðmál og brennistein) í skiptum fyrir ensk klæðaefni, mjöl, bjór, vín og fleira.\u003cbr\u003eEnska öldin hófst skömmu eftir að Svarti dauði herjaði á landið (1402 til 1404) og siglingar frá Noregi lögðust að mestu leyti af í kjölfarið. Um miðja öldina tóku síðan sléttbyrtir, fjölmastra karkarar við af súðbyrtum, einmastra kuggum. Þetta voru stærri skip og gerðu lengra úthald mögulegt.\u003cbr\u003eEnglendingar höfðu lengi áður siglt til landsins, einkum til Vestmannaeyja og lagt þar verslunina undir sig svo Skálholtsstaður (sem þá átti eyjarnar) gat lítið að gert. Snemma á öldinni voru eyjarnar því lýstar einkaeign konungs. Einkum var það sókn eftir skreið sem olli því að siglingar Englendinga til Íslands jukust mikið á 15. öld og talið er að um hundrað skip frá mörgum höfnum Englands hafi árlega siglt þangað til veiða. (www.wikipedia.com).\u003c\/p\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51119970419016,"sku":"OSC-70863","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/91309.jpg?v=1795536871","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/enska-oldin-i-sogu-slendinga-85062-70863","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}