{"product_id":"eyrarpukinn-51252-46408","title":"Eyrarpúkinn # 51252","description":"Eyrarpúkinn. Skáldsaga eftir Jóhann Árelíuz.\u003cbr\u003eGott eintak, áritað í löngu máli.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSögusvið bókarinnar er Akureyri á 6. og 7. áratug síðustu aldar. Einhverjir mestu umbrotatímar í sögu landsins þegar erlend menningaráhrif hvelfast yfir landið og hið pólitíska landslag auðkennist af miklum sviptingum. Þjóðfélagið er að breytast hratt og djúp gjá hefur myndast milli kynslóðanna. Hetjur fornsagnanna víkja fyrir bandarískum poppgoðum og enskum knattspyrnumönnum. Jóhanni tekst afar vel að koma þessum tíðaranda til skila í oft á tíðum kostulegum lýsingum. Allt saman kristallast þetta í aðalsöguhetjunni, drengnum Jóhanni, sem finnst ekkert skemmtilegra en að syngja rokkslagara, svolgra í sig gos, sleikja apótekaralakkrís og lesa Bob Moran svo dæmi sé tekið. Sögurnar af endalausum uppátækjum Jóhanns og vina hans er bráðskemmtileg lesning og eflaust eiga margir eftir að kannast við hluti, persónur og stemningu liðins tíma.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124063928648,"sku":"OSC-46408","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/51252.jpg?v=1754775243","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/eyrarpukinn-51252-46408","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}