{"product_id":"felsenborgarsogur-23933-23401","title":"Felsenborgarsögur # 23933","description":"Felsenborgarsögur. Ævintýralegar sögur sæfarenda í Suðurhöfum. Sögur eftir Johann Gottfried Schnabel. Guttormur Guttormsson, Daði Níelsson og Ari Sæmundsson þýddu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókaútgáfan Muninn auglýsir Felsenborgarsögur í Morgunblaðinu á útgáfudag bókarinnar, 18. september 1956.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eHinar frægu FELSENBORGARSÖGUR\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ekoma í bókaverzlanir í dag í nýrri og vandaðri útgáfu, um 370\u003cbr\u003ebls. að stærð, í vönduðu bandi og smekklegri hlífðarkápu.\u003cbr\u003e\u003cb\u003eFelsenborgarsögurnar\u003c\/b\u003e voru prentaðar á Akureyri 1854 og\u003cbr\u003eeru nú með allra torgætustu 19. aldar bókum, því að þær voru\u003cbr\u003ebókstaflega lesnar upp til agna. Þýðinguna gerðu Ari Sæmundsson\u003cbr\u003eog Guttormur Guttormsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eFelsenborgarsögurnar\u003c\/b\u003e eru fyrir löngu orðnar þjóðsagna„persóna\", sem fáir hafa séð en allir vilja kynnast. Fjölmargir\u003cbr\u003eíslenzkir rithöfundar hafa minnzt á þær í ritum sínum og hefur\u003cbr\u003eþað aukið forvitni manna á að kynnast þessari bók, enda eru\u003cbr\u003eþað ekki ýkjur þó sagt sé, að rifist sé um hvern skækil af bókinni,\u003cbr\u003ehvar sem hann fyrir finnst. Nú gefst kostur á að lesa\u003cbr\u003ebókina og hver svo sem dómur manna verður um hana, þá\u003cbr\u003everður því aldrei neitað að hún er rómantísk og skemmtileg.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eFelsenborgarsögurnar\u003c\/b\u003e eru nú prentaðar óstyttar og óbreyttar\u003cbr\u003eog er engu stungið undir stól af þeim mergjuðu köflum, sem\u003cbr\u003ehelzt hefur verið vitnað til, þegar þessa bók hefur borið á góma.\u003cbr\u003eEn eins og geta má nærri, hafa þær tilvitnanir ekki alltaf verið\u003cbr\u003enákvæmar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eFelsenborgarsögurnar\u003c\/b\u003e verða áreiðanlega aðalskemmtilestur\u003cbr\u003ehaustsins og ættu menn ekki að draga lengi að fá sér eintak.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125920629064,"sku":"OSC-23401","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/23933.jpg?v=1754817901","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/felsenborgarsogur-23933-23401","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}