{"product_id":"ferabok-lafs-olavius-75242-61756","title":"Ferðabók Ólafs Olavius # 75242","description":"Ferðabók. Landshagir í norðvestur-, norður- og norðaustursýslum Íslands 1775-1777. Ásamt ritgerðum Ole Henckels um brennisteinsnám og Christian Zieners um surtarbrand. Tekið hefir saman Ólafur Olavius. Steindór Steindórsson frá Hlöðum íslenzkaði.\u003cbr\u003eÓlafur Ólafsson (eða Ólafur Olavius) (1741-1788) var rithöfundur, útgefandi og fræðimaður. Hann var lengstum búsettur í Danmörku.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur fæddist á Eyri í Seyðisfirði í Norður-Ísafjarðarsýslu. Hann var Ólafsson en latínuseraði nafn sitt að lærðra manna sið þeirra tíma. Olavius brautskráðist úr Skálholtsskóla og réðst til læknanáms hjá Bjarna Pálssyni, landlækni 1762. Hann hóf Háskólanám í Kaupmannahöfn 1765 og brautskráðist með Bachalárspróf í heimspeki árið 1768.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur skrifaði einkum rit og bækling á sviði athafnalífs til þess að hvetja Íslendinga til aukins framtaks. Merkustu rit hans eru Ökonomisk Reise igiennem Island, þar sem atvinnuháttum Íslendinga á seinni hluta 18. aldar var lýst. Ólafur var meðal stofnenda Lærdómslistafélagsins. Hann stofnaði og prentsmiðju í Hrappsey á Breiðafirði sem var fyrsta prentsmiðja á landinu sem fékkst við útgáfu á veraldlegum bókmenntum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eIngibjörg, systir Olaviusar var amma Jóns Sigurðssonar forseta.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121681727816,"sku":"OSC-61756","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/74995.jpg?v=1754727999","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ferabok-lafs-olavius-75242-61756","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}