{"product_id":"ferabok-orvaldar-thoroddsen-83197-45898","title":"Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen # 83197","description":"Ferðabók. Skýrslur um rannsóknir á Íslandi 1882-1898 eftir Þorvald Thoroddsen. Jón Eyþórsson bjó til prentunar. Halldór Pétursson teiknaði mynd höfundar gegnt titilblaði og svipmyndir (vignettur) yfir kaflafyrirsagnir. Verkið er í fjórum bindum. Þetta er önnur útgáfa.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorvaldur Thoroddsen fæddist 6. júní 1855 í Flatey á Breiðafirði. Hann var frumburður foreldra sinna, Jóns Thoroddsens skálds og sýslumanns og Kristínar Þorvaldsdóttur. Þekktustu verk Jóns eru skáldsögurnar Piltur og stúlka (1850) og Maður og kona (1876).\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorvaldur gekk í Lærða skólann í Reykjavík og lauk stúdentsprófi 1875, tvítugur að aldri, og hélt samsumars til háskólanáms í Kaupmannahöfn. Í fyrstu hugðist hann leggja stund á dýrafræði en á öðru námsári sneri hann sér að jarðfræði og landafræði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar starf losnaði á Íslandi hætti hann námi að ráði kennara sinna til þess að tryggja sér lifibrauð. Hann stundaði kennslu framan af, fyrst á Möðruvöllum og síðan í Reykjavík til ársins 1895 er hann fluttist til Kaupmannahafnar. Þar gaf hann sig mest að ritstörfum og er Landfræðissaga Íslands hið fyrsta í röð stórverka hans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinna kunnastur er Þorvaldur fyrir ferðir sínar um Ísland og rannsóknir á landinu. Afrakstur þeirra eru m.a. grundvallarritin tvö, Ferðabók og Lýsing Íslands.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSíðla árs 1895 fluttist Þorvaldur Thoroddsen með fjölskyldu sinni til Kaupmannahafnar og átti þar heima til dauðadags, 28. september 1921. Hann varð því aðeins 66 ára gamall. Banamein hans var heilablæðing.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124091584840,"sku":"OSC-45898","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50617.jpg?v=1754776823","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/ferabok-orvaldar-thoroddsen-83197-45898","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}