{"product_id":"fisaga-gumundar-hjaltasonar-65661-40320","title":"Æfisaga Guðmundar Hjaltasonar # 65661","description":"Æfisaga Guðmundar Hjaltasonar skráð af hinum sjálfum og þrír fyrirlestrar. Gefin út af U.M.F.Í.\u003cbr\u003eFyrirlestrarnir eru - Til æskulýðsins -- Henrik Wergeland -- Kjör kvenna.\u003cbr\u003eGuðmundur Hjaltason (17. júlí 1853 - 26. janúar 1919) var íslenskur kennari og skólamaður. Guðmundur fæddist á Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum. Hann var efnilegur námsmaður og var styrktur til mennta af Jóni Jónssyni landritara og nokkrum bændum á Seltjarnarnesi. Guðmundur fór til náms í Vonheimsskólann í Noregi en skólastjóri þar Kristófer Bruun var vakningamaður og boðberi Grundtvigsstefnunnar í Noregi. Þegar skólanámi hans í Vonheim lauk fór Guðmundur til Danmerkur í lýðháskólann í Askov. Þar var hann þrjá vetur og var þar fyrst við nám en síðar við kennslu í norrænum fræðum og sögu. Hann fluttist til Íslands eftir sjö ára dvöl erlendis, ferðaðist um Suðurland fyrsta sumarið og flutti fyrirlestra. Síðan réð hann sig í kaupavinnu til séra Arnljóts prests á Bægisár og var þar í tuttugu sumur. Á sumrin vann hann ýmis störf en á veturna fékkst hann við kennslu.\u003cbr\u003eGuðmundur hélt skóla veturinn 1883— 1884 skóla fyrir tíu til þrettán drengi úr Þingeyjarsýslu í Laufási hjá séra Magnúsi, föður Jóns Magnússonar, sem síðar varð forsætisráðherra. Guðmundur stofnaði svo skóla á Oddeyri sem starfaði 1884—86, og fékk til þess styrk úr opinberum sjóði. Oddeyrarskólann sóttu 24 menn. Engin próf voru í skólanum því Guðmundur taldi próf gera meira illt ein gott. Eftir það fór Guðmundur austur í Kelduhverfi og var kennari þar og í Axarfirði og Mývatnssveit í ellefu ár. Guðmundur fór fyrirlestraferðir til Noregs. Hann átti þar ýmsa vini svo sem Henrik Ibsen og Björnstjerne Björnson.\u003cbr\u003eGott eintak í vönduðu skinnbandi.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124886536520,"sku":"OSC-40320","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/65661a.jpg?v=1754790606","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/fisaga-gumundar-hjaltasonar-65661-40320","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}