{"product_id":"fjalli-sem-yppti-oxlum-47281-43161","title":"Fjallið sem yppti öxlum # 47281","description":"Fjallið sem yppti öxlum. Maður og náttúra. Eftir Gísla Pálsson.\u003cbr\u003eGetur maður átt samleið með fjöllum og hraunbreiðum? Myndað náið samband við atburði í jarðsögunni? Fjallið sem yppti öxlum fjallar á nýstárlegan hátt um „jarðsambönd“ fólks sem ekki eru síður mikilvæg en tengsl þess við samborgara sína. Höfundur segir frá bernsku sinni í nábýli við iðandi eldfjöll, mannlegu drama andspænis náttúruvá og þeim ógnum sem steðja að lífríki jarðar. Glíma manna við jarðelda, ekki síst í Heimaeyjargosinu árið 1973, opnar honum óvenjulega sýn inn í vanda jarðarbúa á svokallaðri mannöld sem einkennist af skaðlegum og oft óafturkræfum áhrifum manna á bólstaði sína og jörðina sjálfa.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGísli Pálsson er prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Hann stundaði framhaldsnám við Manchesterháskóla og lauk þaðan doktorsprófi árið 1982. Meðal bóka hans eru ævisögurnar Frægð og firnindi: Ævi Vilhjálms Stefánssonar og Hans Jónatan: Maðurinn sem stal sjálfum sér, sem báðar hafa verið þýddar á ensku. Hann hefur hlotið margs konar viðurkenningu fyrir rit sín og rannsóknir.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124531822920,"sku":"OSC-43161","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/47281.jpg?v=1754783927","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/fjalli-sem-yppti-oxlum-47281-43161","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}