{"product_id":"fljoti-helga-52973-47796","title":"Fljótið helga # 52973","description":"Fljótið helga. Ljóð eftir Tómas Guðmundsson.\u003cbr\u003eGott eintak í ágætu bandi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAð haustnóttum einn ég að heiman geng\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþví harms míns og gleði bíður\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehið myrka fljót, sem við flúð og streng\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esvo fallþungum niði líður.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað kom hingað forðum á móti mér\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehvern morgun í sóldýrð vafið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ kvöld á það sefandi söng, sem ber\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eminn síðasta vordag í hafið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJá, hér fann ég aldir og örlög hjá\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí elfunnar niði streyma,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog hljóðum mér dvaldist við hylji þá,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem himin og stjörnur geyma.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞar hvarf mér sú veröld, sem vökunnar beið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞar varð mér hver ævinnar dagur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað heilögum söng, er um hjartað leið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esvo harmdjúpur, sár og fagur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞá settust þeir töfrar í sál minni að,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem síðan ég mátti ekki verjast.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg því lét mig ósnortinn æðimargt það,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem öðrum varð hvöt til að berjast.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e- Ég veld þeirri sök því ég veit hver hún er,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esú veröld, sem fékk mín ei notið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn hér fann ég ungur í hjarta mér\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþann himin, sem ég gat lotið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg geiglausum huga ég held til móts\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evið haustið, sem allra bíður.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eOg sefandi harmljóð hins helga fljóts\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eúr húminu til mín líður.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEins veit ég og finn að það fylgir mér\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eum firð hinna bláu vega,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eer hníg eitt síðkvöld að hjarta þér,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eó, haustfagra ættjörð míns trega.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123946717512,"sku":"OSC-47796","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/52973.jpg?v=1754771493","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/fljoti-helga-52973-47796","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}