{"product_id":"floamanna-saga-56534-27603","title":"Flóamanna saga # 56534","description":"Flóamanna saga.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorleifr Bjarnason gaf út.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁður hafði Flóamanna saga komið á dönsku 1809 og svo í útgáfu Möbiusar og Guðbrands Vigfússonar í Leipzig 1860.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHaraldur konungur gullskeggur réð fyrir Sogni. Hann átti Sölvöru, dóttur Hundólfs jarls, systur Atla jarls mjóva. Þeirra dætur voru þær Þóra er átti Hálfdan konungur svarti Upplendingakonungur og Þuríður er átti Ketill helluflagi. Haraldur konungur ungi var son þeirra Hálfdanar og Þóru. Honum gaf Haraldur konungur gullskeggur nafn sitt. Haraldur konungur gullskeggur andaðist fyrst þeirra en þá Þóra, þá Haraldur ungi síðast og bar svo ríkið undir Hálfdan svarta en hann setti þar yfir Atla jarl hinn mjóva. Síðan fékk Hálfdan konungur Ragnhildar, dóttur Sigurðar konungs hjartar. Áslaug var móðir Sigurðar hjartar, dóttir Sigurðar orms í auga, Ragnarssonar loðbrókar. Móðir Sigurðar orms í auga var Áslaug, dóttir Sigurðar Fáfnisbana, Sigmundarsonar, Völsungssonar, Rerissonar, Sigarssonar, Óðinssonar er réð fyrir Ásgarði. Móðir Áslaugar var Brynhildur Buðladóttir. Son Hálfdanar svarta og Ragnhildar var Haraldur er fyrst var kallaður Dofrafóstri, þá Haraldur lúfa en síðast Haraldur hinn hárfagri.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125590229320,"sku":"OSC-27603","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/29012.jpg?v=1754811991","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/floamanna-saga-56534-27603","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}