{"product_id":"fodurtun-88082-48209","title":"Föðurtún # 88082","description":"Föðurtún. Eftir Pál V.G. Kolka. - Páll V. G. Kolka (Páll Valdimar Guðmundsson Kolka), var læknir Vestmannaeyja frá 1920 til 1934. Hann var fæddur að Torfalæk í Ásum þann 25. janúar 1895. Páll andaðist í Reykjavík árið 1971. Páll var sonur Guðmundar Guðmundssonar bónda og Ingibjargar Sólveigar Ingimundardóttur. Kona hans var Guðbjörg Guðmundsdóttir og áttu þau 4 börn. Hann varð stúdent í Reykjavík árið 1913 og lauk svo læknisprófi frá Háskóla Íslands 1920. Páll stundaði framhaldsnám erlendis bæði í Evrópulöndum og Bandaríkjunum. Páll stundaði almennar lækningar í Vestmannaeyjum frá 1920 til 1934 og jafnframt sjúkrahúslæknir þar 1930 til 1934. Hann var einnig settur héraðslæknir um tíma 1924 til vors 1925. Páll var skipaður héraðslæknir á Blönduósi árið 1934 og gegndi því embætti til ársloka 1959. Hann sat sem fulltrúi Íslands á alþjóðaráðstefnum lækna og ýmsum læknaþingum og ráðstefnum. Páll tók virkan þátt í félagsmálum og stjórnmálum meðan hann dvaldi í Vestmannaeyjum. Hann átti sæti í bæjarstjórn þar 1926 til 1934 og var forseti bæjarstjórnar 1930 til 1934.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440304419144,"sku":"OSC-48209","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70491.jpg?v=1770471406","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/fodurtun-88082-48209","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}