{"product_id":"fra-torfbae-til-tolvualdar-a-50-arum-40091-37036","title":"Frá torfbæ til tölvualdar á 50 árum # 40091","description":"Frá torfbæ til tölvualdar á 50 árum. Stefán Bjarnason í Flögu segir frá.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eStefán hefur um langt skeið haldið dagbækur um markverða atburði í sínu lífi og á Héraði. Einnig hefur hann skrifað þætti í Múlaþing, rit sem Múlasýslur gefa út, og fréttabréf úr Skriðdal sem um langt skeið hafa birst í vikublaðinu Austra. Auk þessa hefur Stefán skrifað fjöldann allan af minningar- og afmælis greinum um samferðarfólk sitt. Stefán gefur sjálfur út bókina sem prentuð er í Héraðsprenti á Egilsstöðum. Bókin er 253 blaðsíður prýdd fjölda mynda.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eStefán Bjarnason fyrrum bóndi í Flögu er nú aldurhniginn en ljón frískur maður. Hann var sveitar höfðingi sem gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir sveitunga sína. Stefán skrifar látlaust og gott mál og á þessu máli skýrir hann frá reynslu sinni, vonum og störfum á 50 ára búskaparferli. Á síðunum birtist einnig fjölskylda hans og fjölmargir sveitungar og samferðarmenn við störf og skemmtan. Stundum berst sagan út fyrir Skriðdalinn niður til Reyðarfjarðar suður á land og til Svíþjóðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ bókinni er rakin þróunarsaga af vænu býli austur á Héraði. Framfaraskref eru tímasett og skýrt með hverjum hætti þau voru stigin. Einnig er áhugavert að fylgjast með höfundi, fólki hans og sveitungum á þessum síðum. Þarna segir frá fólki sem skapar sér sjálft lífsnautnir og gagnsemdir. Gerir vísur, leikur og syngur, snýst við sauðkindur, kýr og hesta. Einnig segir frá innreið tækninnar í íslenskan landbúnað. Frá torfbæ til tölvualdar er því búskaparsinfónía með upplyftingu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125105459528,"sku":"OSC-37036","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40091.jpg?v=1754796990","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/fra-torfbae-til-tolvualdar-a-50-arum-40091-37036","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}