{"product_id":"frasagnir-um-sland-75243-51155","title":"Frásagnir um Ísland # 75243","description":"Frásagnir um Ísland. Niels Horrebow segir frá því helsta sem hann sá á ferðum sínum um Ísland. Steindór frá Hlöðum íslenskaði og ritar formála.\u003cbr\u003eNiels Horrebow fæddist í Kaupmannahöfn árið 1712. Hann nam stjörnufræði og stærðfræði um skeið en lagði síðan stund á lögfræði og varði doktorsritgerð í fræðum þeim. Árið 1749 var hann sendur á vegum danska Vísindafélagsins til Íslands til að gera ýmsar athuganir og lýsingar á landinu, náttúrfari þess og atvinnuháttum. Hér dvaldi hann í tvö ár við frekar rýran kost. Hann hafði lélegan tækjabúnaði og lítið fé til ferðalaga. Horrebow var kallaður heim, þó með fullri sæmd fyrir störf sín. En í hans stað tóku Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson að rannsaka landið á vegum danska Vísindafélagsins. Horrebow skrifaði bók er heim kom og kom hún út árið 1752.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eRit Horrebows var einskonar varnarrit til að hrekja óhróður um Ísland sem komið hafði fram í bók eftir þýskan höfund að nafni Johann Anderson. Hafði hann skrifað bók um Ísland og byggði hann fróðleik sinn um Ísland á frásögnum danskra kaupmanna og sjómanna sem sigldu milli Íslands og Gluckstad. Þessi bók kom út í danskri þýðingu árið 1947 og var mikið ýkjurit.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123398443336,"sku":"OSC-51155","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/75243.jpg?v=1754761383","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/frasagnir-um-sland-75243-51155","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}