{"product_id":"frostrosir-63352-51801","title":"Frostrósir # 63352","description":"Frostrósir. Ljóð eftir Guðjón Benediktsson frá Einholti.\u003cbr\u003eFrostrósir er eina bók Guðjóns frá Einholti.\u003cbr\u003eGuðjón Benediktsson var fæddur að Viðborði í Mýrarhreppi 1896. Foreldrar hans voru Benedikt Kristjánsson bóndi þar og síðar í Einholti í sömu sveit og kona hans Aðalheiður Sigurðardóttir. Guðjón fór til náms við Gagnfræðaskólann á Akureyri og lauk þaðan prófi árið 1918. Stundaði nám við 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík 1919-1920. Kennari í sinni heimasveit 1918-1919 og við Kvöldskóla verkamanna í Reykjavík 1925-1927. Aðalstarf hans varð hinsvegar múrverk og byggingarvinna og vann hann við þau störf þar til hann varð að leggja múrskeiðina á hilluna vegna heilsubrests. Eftir að Guðjón hætti í múrverkinu réðst hann til Húsnaðismálastofununar ríkisins og vann það eftirlits- og skrifstofustörf fast fram undir áttrætt.\u003cbr\u003eGuðjón heillaðist ungur að hugsjónum jafnaðar og félagshyggji. Hann starfaði í Dagsbrún á þriðja áratugnum og lét verulega til sín taka á þeim vettvangi.Einnig gengdi Guðjón trúnaðarstörfum fyrir Múrarafélag Reykjavíkur og var þar stjórnarmaður frá 1925 til 1953. Guðjón var einn af þeim sem hlutu hvað þyngstan dóm eftir átökin 9. nóvember 1932.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123206029640,"sku":"OSC-51801","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/57798.jpg?v=1754759580","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/frostrosir-63352-51801","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}