{"product_id":"fugmaelavisur-86859-72035","title":"Öfugmælavísur # 86859","description":"Öfugmælavísur. Eignaðar Bjarna Jónssyni Borgfirðingaskáldi. Með myndum eftir Örlyg Sigurðsson.\u003cbr\u003eBjarni Jónsson, skáldi, ýmist kallaður Bjarni skáldi, Húsafells-Bjarni, Bjarni skáldi í Bæ og stundum Borgfirðingaskáld, er uppi um aldamótin 1600. Bjarna eru eignaðar ýmsar rímur, þar á meðal Ekkjuríma og fyrri hlutann (fyrstu 15 rímurnar) af Rímum af Flóres og Leó. Hallgrímur Pétursson orti svo síðari hluta rímnanna. Kvæði og sálma orti Bjarni líka og eru honum eignaðir sálmarnir: Gæskuríkasti græðari minn og Heyr mín hljóð, sem verið hafa ákaflega ástsælir, og það er ljóst af því sem Bjarna skálda er kennt og til vor er komið, að hann hefur verið eitt besta skáld síns tíma og hefur mjög haft áhrif á Hallgrím. Þá er hann talinn hafa orðið fyrstur til að yrkja öfugmælavísur á íslensku.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440419729736,"sku":"OSC-72035","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/86859.jpg?v=1770472573","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/fugmaelavisur-86859-72035","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}