{"product_id":"gengin-spor-63635-45493","title":"Gengin spor # 63635","description":"Gengin spor. Ljóð eftir Guðrúnu Árnadóttur frá Oddsstöðum.\u003cbr\u003eFyrsta og eina bók Guðrúnar frá Oddssöðum.\u003cbr\u003eGuðrún Árnadóttir er fædd 15. október árið 1900 að Oddsstöðum í Lundarreykjadal og ólst þar upp til ellefu ára aldurs, en þá lést faðir hennar. Eftir það bjó hún með móður sinni á ýmsum stöðum í Borgarfirði. Hún naut ekki skólamenntunar utan barnafæðslu, en var fróðleiksfús og lærði ung að leika á hljóðfæri. Árið 1917 fluttist hún til Reykjavíkur með móður sinni og vann þar sem verkakona en var í síld á sumrin. Árið 1922 giftist hún Bjarna Tómassyni sjómanni og bjuggu þau í Reykjavík. Þau eignuðust ekki börn en tóku kjörson. Hann fórst í bílslysi rúmlega tvítugur að aldri árið 1949.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuðrún hafði áhuga á þjóðmálum, var róttæk í skoðunum og starfaði m.a. í Alþýðuflokknum. Hún hafði yndi af alþýðukveðskap og var í stjórn Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Eina ljóðabók hennar er Gengin spor sem kom út árið 1949 og hún tileinkar minningu sonar síns. Áður höfðu birst nokkur ljóð eftir hana í Borgfirskum ljóðum og einnig í blöðum. Guðrún lést í Reykjavík 14. apríl 1968. (www.skald.is).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124118946120,"sku":"OSC-45493","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50145.jpg?v=1754777899","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/gengin-spor-63635-45493","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}