{"product_id":"gisli-sursson-61649-45962","title":"Gísli Súrsson # 61649","description":"Gísli Súrsson. Sjónleikur í þremur þáttum. Gísli Súrsson. Sjónleikur einnig nokkur kvæði. Höfundur Beatrice Helen Barmby. Matthías Jochumsson íslenzkaði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Norðurlandi 2. árg. 45.tbl. 1903 birtist eftirfarandi ritdómur um leikritið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLeikrit þetta er eftir enska stúlku, sem\u003cbr\u003edó 1899, en þegar hún samdi það, var hún\u003cbr\u003etæplega hálfþrítug. Sjálf kendi hún sér íslenzku, og varð vel að sér í íslenzkum\u003cbr\u003efræðum fornum. Þegar þess er gætt, hve\u003cbr\u003eung stúlkan var, þegar hún orti sjónarleikinn, má telja, að henni hafi tekizt\u003cbr\u003efurðuvel, en ekki verður séð, að hann sé\u003cbr\u003eneitt afbragðsrit, og langt er frá því, að\u003cbr\u003ehann komist til jafns við leikrit mestu\u003cbr\u003eleikritasnillinga, sem nú eru uppi, t. d.\u003cbr\u003eHenriks Ibsens, enda er fárra meðfæri eða\u003cbr\u003eeinskis að jafnast við hann. Það eru og\u003cbr\u003eeflaust ýkjur, sem sagt er í innganginum,\u003cbr\u003eað sjaldan eða aldrei hafi listaverk verið\u003cbr\u003efært í nýjan listabúning jafnvel og \"Gísli\",\u003cbr\u003eþví að altítt er, að snildarleikrit eru soðin\u003cbr\u003eupp úr snildarlegum skáldsögum, en ef\u003cbr\u003ehér er átt við fornsögur vorar, eins og\u003cbr\u003emig grunar, þá þarf ekki langt að leita\u003cbr\u003etil þess að finna miklu meira listaverk\u003cbr\u003eorkt út úr íslenzkri sögu, og á eg hér við\u003cbr\u003eGrettisljóð eftir þýðanda leikrits þessa.\u003cbr\u003eAftur hafa fáir bætt sig á því að yrkja\u003cbr\u003eleikrit eftir íslendingasögum, hvorki útlendir menn né innlendir, og ber það til,\u003cbr\u003eað fornsögur vorar eru svo dramatiskar\u003cbr\u003e(liggja svo vel við sýningarlistinni) yfirleitt, að erfitt er að bæta. Ibsen hefir\u003cbr\u003ealdrei orkt eftir nokkurri íslendingasögu,\u003cbr\u003eog kemur hann því ekki til greina hér,\u003cbr\u003een satt er það, að hann hefir haft stuðning af íslendingasögum í tveimur leikritum sínum að minsta kosti. Þar sem ekki\u003cbr\u003eer mjög hátt risið á samskonar leikritum\u003cbr\u003eog Gísli Súrson er, þá má segja með\u003cbr\u003esanni, að hann beri af flestum eða öllum\u003cbr\u003esvipuðum leikritum. Kostir sjónarleiksins\u003cbr\u003eeru þeir, að lyndiseinkunnum manna í\u003cbr\u003esögunni er vel haldið, og að lítið er vikið\u003cbr\u003eút frá henni, þó að slíkt sé reyndar altítt\u003cbr\u003eog leyfilegt, ef betur má fara. Enn er vel\u003cbr\u003efarið með sálarstríð Gísla út úr vígi Þorgríms, en það er mergurinn málsins. Til\u003cbr\u003eókosta má telja, að á einstaka stað heldur\u003cbr\u003eGísli of löng eintöl, því það má ekki eiga\u003cbr\u003esér stað í vönduðum leikritum, sem orkt\u003cbr\u003eeru um þessar mundir. Í annan stað er\u003cbr\u003edrepið alt of víða á kossa, því að þótt\u003cbr\u003egetið sé um það víða í sögunum, að menn\u003cbr\u003ehafi minzt hvor við annan, þá liggur kossaflens og kossahjal svo fjarri hugsunarhætti\u003cbr\u003eíslendinga í fornöld, að lítið ætti að bera\u003cbr\u003eá slíku þar, sem forn-íslendingum er lýst.\u003cbr\u003eJungfrú Barmby orkti leikrit sitt í ljóðum, en síra Maíthías hefir breytt því í\u003cbr\u003eóbundið mál. Hann heldur sér svo nærri\u003cbr\u003efornmálinu, sem auðið var, og hefir honum víðast tekizt mæta vel, eins og hans\u003cbr\u003evar von og vísa, því að nú kann víst enginn maður að beita fornmálinu jafnvel og\u003cbr\u003eséra Matthías. Þó eru meinlokur í ritinu\u003cbr\u003eá einstaka stað, en þær koma frekar fram\u003cbr\u003eí einstökum orðum en orðaskípan. Eg vil\u003cbr\u003esérstaklega minnast á tvö orð, sem eg tel\u003cbr\u003ealveg ófær, og það því fremur, sem óvönduð orð og merkingarröng hneixla þeim\u003cbr\u003emun meir, sem þau koma fyrir í vandaðra\u003cbr\u003emáli. Bls. 25 stendur: Hann (Þorgrímur)\u003cbr\u003edúðar spjótið í staðinn fyrir; hann dýr\u003cbr\u003e(dúir) spjótið. Að dúða þýðir að hylja,\u003cbr\u003eeinkum marghyjja, t. d. að dúða sig í\u003cbr\u003ekulda, og getur sú merking alls ekki komizt hér að, en að dýja þýðir að hrista, og\u003cbr\u003emun vera átt við það hér. Á seinustu síðunni stendur: Og hýrara nú þú hlæðir.\u003cbr\u003eÞess er ekki getið, hverju eða hvað verið\u003cbr\u003evar að hlaða. Eflaust á að standa »hlæir«\u003cbr\u003eaf að hlæja. Slíkar skaðræðisvillur mega\u003cbr\u003ealls ekki eiga sér stað í íslenzku máli og\u003cbr\u003esízt hjá síra Matthíasi \"snillingnuin snjalla\".\u003cbr\u003eKvæðin eru lagleg, en ekkert afbragð.\u003cbr\u003eVel er bókin úr garði gerð frá prentar-\u003cbr\u003eans hendi, en þó hefir slæðst inn í hana\u003cbr\u003eházkaleg prentvilla. Bls. 34 vantar per-\u003cbr\u003esónunafnið: Þorgrímur efst á síðunni, og\u003cbr\u003egetur valdið misskilningi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓ. D.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124088570184,"sku":"OSC-45962","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50696.jpg?v=1754776621","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/gisli-sursson-61649-45962","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}