{"product_id":"gongulag-timans-53512-48246","title":"Göngulag tímans # 53512","description":"Göngulag tímans. Skáldsaga eftir Sten Nadolny. Arthúr Björgvin Bollason þýddi.\u003cbr\u003eSagan fjallar um hinn fræga enska sæfara og landkönnuð John Franklin (1786-1847). Sá Franklin sem Nadolny hefur skapað er að mörgu leyti frábrugðinn hinni sögulegu fyrirmynd. Hann er einkennilega hægur í tali og hugsun og öllum viðbrögðum og leggur annan mælikvarða á tímann en flestir í kringum hann. Er öll sagan sögð frá sjónarhorni hins hægláta. Segir hér frá æsku Franklins þar til hann gengur í sjóherinn. Hann tekur þátt í blóðugum sjóorustum við Kaupmannahöfn og Trafalgar. Eftir að ferli hans í sjóhernum lýkur gerist hann landkönnuður og leggur upp í erfiða leiðangra í leit að siglingaleið í norðri frá Atlantshafi til Kyrrahafs. Loks gerist hann nýlendustjóri í Tasmaníu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123900645704,"sku":"OSC-48246","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/53512.jpg?v=1754770024","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/gongulag-timans-53512-48246","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}