{"product_id":"grytta-gatan-71882-61818","title":"Grýtta gatan # 71882","description":"Grýtta gatan. Ljóð eftir Hrefnu Sigurðardóttur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKristjana Hrefna Ingibjörg Sigurðardóttir fæddist 21. maí 1920 í Laufási, Þingeyri við Dýrafjörð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHrefna ólst upp á Þingeyri, samdi og söng lög með systur sinni sem barn, en var afar fjölhæf listakona, samdi ljóð og lög, lék á píanó og gítar, munnhörpu og harmonikku. Mesta áherslu lagði hún á myndlistina, einkum vatnslita- og tússmyndir á pappír, en einnig á tréplötur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHrefna tók mikinn þátt í leikhús- og kórastarfi á Patreksfirði, Kópavogi og í Reykjavík og spilaði á gítar og söng með hópi af konum í einu atriði í kvikmyndinni Stella í orlofi. Hrefnu var afar umhugað um að halda uppi fjöri og skemmtilegheitum hvar sem hún var stödd í það og það skiptið, hvort sem það var í fjölskylduboðum, Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði eða með vinum í leikhúsinu eða á kóræfingu.\u003cbr\u003eHrefna var alþýðulistamaður og hélt Safnasafnið við Eyjafjörð tvisvar sinnum sýningar með verkum hennar. Í seinna skiptið var um einkasýningu að ræða sumarið áður en hún lést.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHrefna gaf út þrjár ljóðabækur, mest rímuð ljóð í tveim fyrri bókunum, en í seinustu bókinni fjölgar til muna órímuðum ljóðum. Nokkur tregi og dapurleiki einkennir fyrri tvær bækur hennar, en mun léttara er yfir þeirri síðustu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 1944 giftist Hrefna Kjartani Th. Ingimundarsyni, skipstjóra. Hann var einnig afar listfengur og eftir hann liggur mikið af ljóðum og vísum, en einnig mikið af málverkum og útskornum listaverkum. Hrefna og Kjartan eignuðust 5 börn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121672192328,"sku":"OSC-61818","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/71882.jpg?v=1754727769","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/grytta-gatan-71882-61818","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}