{"product_id":"gudirnir-okkar-gomlu-asamt-snorra-eddu-87666-57728","title":"Guðirnir okkar gömlu ásamt Snorra-Eddu # 87666","description":"Guðirnir okkar gömlu ásamt Snorra-Eddu í útgáfu Guðrúnar Nordal.\u003cbr\u003eBókin er í rauninni tvær bækur í einni: Fyrri hlutinn, Guðirnir okkar gömlu, er verk Sölva Sveinssonar en þar er fjallað um ásatrú og menningu norrænna miðaldamanna frá sögulegum sjónarhóli og ásatrúin m.a. skoðuð í samhengi við önnur trúarbrögð. Bók Sölva kom út í tilraunaútgáfu fyrir meira en áratug en hefur verið mikið endurskoðuð og endurbætt. Síðari hlutinn er ný útgáfa af Snorra-Eddu í ritstjórn Guðrúnar Nordal með ítarlegum orðskýringum. Í þessari útgáfu er hluti Snorra-Eddu gefinn út, þ.e. Formálnn (Prologus), Gylfaginning og frásagnarkaflarnir í Skáldskaparmálum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Skáldskaparmálum eru ung skáld ávörpuð og því sennilegt að Snorra-Edda hafi í upphafi verið hugsuð sem kennslubók í skáldskap. Hún er því tilvalin til kennslu og er enn í dag ein besta kennslubókin sem völ er á til að kynnast heiðnum átrúnaði og gömlum kveðskap, bæði eddukvæðum og dróttkvæðum.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440369168712,"sku":"OSC-57728","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/66005.jpg?v=1770471823","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/gudirnir-okkar-gomlu-asamt-snorra-eddu-87666-57728","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}