{"product_id":"gullkista-slands-sem-gleymdist-44882-41131","title":"Gullkista Íslands sem gleymdist # 44882","description":"Gullkista Íslands sem gleymdist. Eftir Gísla Indriðason.\u003cbr\u003eHöfundur hvetur landa sína til að taka til við fiskeldi.\u003cbr\u003eGísli Indriðason er Eyfirðingur að uppruna, fæddur að Kjarna við Akureyri árið 1903, en alinn upp í Garðshorni í Kræklingahlíð frá 4 — 16 ára aldurs hjá Guðmundi skipstjóra Tryggvasyni, sem þar bjó. Byrjaði ungur sjómennsku á Dröfn, skipi Höfðabræðra, með Siguróla Tryggvasyni skipstjóra, bróður Guðmundar, var síðan á Laxamýri hjá Agli og Jóhannesi Sigurjónssonum og minnist þess enn, þegar dag eftir dag voru þrír hestburðir af dýrasta laxi dregnir á land, reyktir heima og síðan sendir til Þórðar Guðjohnsens, sem kom þeim á erlendan markað. Gísli var um skeið í Norður Þingeyjarsýslu, og ætlaði þá m.a- að læra undir skóla, síðan gekk hann tvo vetur á Gagnfræðaskólann á Akureyri og hafði í hyggju að halda áfram námi, en af því varð ekki vegna fjárskorts. Því næst fluttist hann austur á land og var fyrst sjómaður á Fáskrúðsfirði, síðar kennari þar og á Eskifirði og loks tollþjónn á Seyðisfirði. Þaðan fluttist hann til Ísafjarðar og var þar tollvörður og loks um árabil búsettur á Siglufirði, þar af mörg ár sem póst- og símafulltrúi. Að síðustu lá leiðin til Reykjavíkur og þar hefur hann gegnt ýmsurn verzlunar- og kaupsýslustörfum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124839121224,"sku":"OSC-41131","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/44882.jpg?v=1754788763","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/gullkista-slands-sem-gleymdist-44882-41131","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}