{"product_id":"halldor-laxness-49281-44777","title":"Halldór Laxness # 49281","description":"Halldór Laxness. Eftir Peter Hallberg. Íslenskað hefur Njörður P. Njarðvík.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkrif Péturs Hallbergs um Halldór Laxness áttu drjúgan þátt í að beina athygli bókamenntamanna í Svíþjóð og víðar um heim að verkum Halldórs sem síðan juku stöðugt vinsældir skáldsins og virðingu meðal lesenda.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ePétri Hallberg þótti það aftur á móti ofmælt þegar sagt var að hann hefði átt ríkan þátt í því að Halldóri voru veitt Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1955. Ólafur Ragnarsson, útgefandi Halldórs um árabil segir svo frá í minningargrein um Peter Hallberg: \"Ég minnist þess að þetta bar á góma er við sátum sem oftar á spjalli um verk Halldórs þegar þessi hógværi fræðimaður var hér á ferð fyrir nokkrum árum. Þá kvaðst Pétur fullyrða að Halldór hefði tvímælalaust hlotið Nóbelsverðlaunin fyrir verk sín þótt engin tengsl hefðu orðið milli þeirra og Pétur ekki kynnt bækur hans í Svíþjóð. \"Halldór hefur aftur á móti gefið mér mikið,\" sagði hann, \"og hefur sem höfundur orðið grundvöllur að miklum hluta ævistarfs míns\".","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124175372616,"sku":"OSC-44777","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/49281.jpg?v=1754779834","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/halldor-laxness-49281-44777","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}