{"product_id":"hallo-eldborg-ert-a-hlusta-li-69925-60527","title":"Halló Eldborg, ert' að hlusta Óli? # 69925","description":"Halló Eldborg, ert' að hlusta Óli? Saga ms. Eldborgar MB. 3 frá Borgarnesi. Heimildarsaga (með frjálslegu ívafi). Eftir Hassa (Matthías Ólafsson).\u003cbr\u003eHalló Eldborg- Ert'að hlusta Óli?\" er komin út hjá bókaútgáfunni Hafgliti. Höfundur bókarinnar er Matthías Ólafsson, (Hassi), myndlistarmaður og lífkúnstner, eins og hann er kynntur á bókarkápu. Sagan fjallar um síldarskipið Eldborgu frá Borgarnesi undir stjórn Vestfirðingsins Ólafs Magnússonar. \"Öll stríðsárin, að undanskildum sumarsíldveiðum og árvissum flutningum fyrir herinn vor og haust, sigldi Ólafur og áhöfn hans Eldborginni krappan sjó á vetrum með ísvarinn bátafissk til Englands. Ólafur var skapmaður mikill, afburða sjómaður, afrenndur að afli og áræðinn að sama sskapi,\" segir meðal annars á bókarkápu. Þar segir ennfremur: \"150 áður óbirtar myndir tengdar veiðum, tímaferkt söfnunarverk prýða bókina, og eru þær einar sér gagnmerk heimild um Norðurlandssíldveiðar Íslendinga 1934 til 1947. Í viðauka eru prentaðar einkar athyglisverðar athuganir Ólafs heitins, síldarkóngs í marggang, varðandi veiðarnar fyrir Norðurlandi á fyrrnefndu tímaskeiði, nánast vísindaleg skýrslugerð um sjávarhita, átumagn, vinda, strauma og fleira, sem tengist veiðum á hinu duttlungafulla silfri hafsins. (Fréttatilkynning frá útgefanda).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121889083720,"sku":"OSC-60527","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/69925.jpg?v=1754731976","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hallo-eldborg-ert-a-hlusta-li-69925-60527","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}