{"product_id":"hamingjuskipti-74422-63743","title":"Hamíngjuskipti # 74422","description":"Hamíngjuskipti. Hetjusaga eftir Steinar Sigurjónsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSteinar Sigurjónsson fæddist þann 9. mars árið 1928 á Hellissandi. Hann fluttist ungur til Akraness og ólst þar upp. Steinar lærði prentiðn við Hrappseyjarprent og Prentverk Akraness og lauk prófi sem prentari frá Iðnskólanum á Akranesi árið 1950. Hann starfaði alfarið við iðn sína í nokkur ár en sneri sér síðan að ritstörfum. Steinar Sigurjónsson er í hópi merkustu rithöfunda Íslands á síðari helmingi tuttugustu aldar. Í fyrstu verkum hans var sleginn tónn sem ekki hafði áður heyrst í íslenskum bókmenntum. Yrkisefnin voru ný – grámygla sjávarþorpsins sem kæfir niður þrá mannsins eftir fegurð – og aðferðirnar sömuleiðis: Steinar var á vissan hátt frumkvöðull módernískrar sagnagerðar á Íslandi, en hann var líka athyglisvert ljóðskáld. Fyrsta bók Steinars, Hér erum við, kom út árið 1955. Af helstu verkum hans má nefna Ástarsögu, Blandað í svartan dauðann, Farðu burt skuggi og Kjallarann. Steinar skrifaði einnig fjölmörg leikrit og einþáttunga og hafa sumir þeirra verið fluttir í útvarpi. Hann skrifaði verk sín ekki aðeins í eigin nafni heldur einnig undir dulnefnunum Steinar á Sandi, Sjóni Sands og Bugði Beygluson.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121344840008,"sku":"OSC-63743","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/74422.jpg?v=1754720924","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/hamingjuskipti-74422-63743","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}