{"product_id":"han-d-islande-89382","title":"Han d´Islande # 89382","description":"\u003cp\u003eHan d´Islande. Par Victor Hugo. \u003cbr\u003eHans frá Íslandi er fyrsta skáldsaga rithöfundarins Victor Hugo. Bókin kom út á frönsku árið 1823. Victor Hugo fékk hugmynd af þeirri sögu þegar hann 18 ára gamall lá veikur af hitasótt í nokkrar vikur. Sögusviðið er Þrándheimur skömmu eftir 1700 eða í þeirri viku sem frægasti fangi Dana var náðaður. Það var von Griffenfeldt greifi, öðru nafni Peter Schumacher og var hann í haldi í Munkhólma við Þrándheim en hann hafði verið dæmdur til dauða fyrir landráð en konungur breytt því í lífstíðarfangelsi. Griffenfeldt hafði meðal annars komið við sögu við veitingu biskupsembættis á Hólum þegar Jón Vigfússon (Bauka-Jón) varð biskup. Hugo býr til sögupersónu, íslenskan útilegumann Hans að nafni og heitir bókin eftir honum „Han d'Islande\". Þessi villimaður er eins konar forstúdía fyrir villimanninn Jean Valjean í Vesalingunum og líkist líka Skugga-Sveini. Eins og Skugga-Sveinn hafði þrælinn Ketil skræk var þræll Hans frá Íslandi dr. Benignus Spiagudrius, líkhússtjóri í Þrándheimi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52958418665800,"sku":null,"price":19500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89382.jpg?v=1776860008","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/han-d-islande-89382","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}